Hotel Djúpavík
     

Hljóð-leg – Rósa Sigrún Jónsdóttir

Rósa Sigrún Jónsdóttir, myndlistarmaður sýnir verkið “Hljóð-leg” í gömlum lýsistanki í Djúpuvík á Ströndum.

“Þetta byrjaði allt með miklum örnefnapælingum, en sá sem ferðast mikið um landið er stöðugt að læra ný örnefni og velta þessum fjölbreyttu orðum í munni sér. Ég hef nokkrum sinnum komið til Djúpuvíkur í Reykjarfirði syðri. En sumarið 2008 kom ég inn í einn lýsistankinn sem tilheyrir gömlu síldarverksmiðjunni og heillaðist algerlega af þessu rými sem ómar næstum því inn í eilífðina. Ég hélt að örnefnin gætu átt heima þarna en eins og títt er um tilraunir og rannsóknir þá geta þær leitt til nokkuð annarar niðurstöðu en upphaflega var gert ráð fyrir.”

Niðurstaða þessara tilrauna verður gerð opinber laugardaginn 18. júlí kl.14:00 og stendur til 20. ágúst.

Nánar er hægt að kynna sér feril og verk Rósu Sigrúnar á heimasíðunni www.lysandi.is

This sound installation was supported by Eva and Ásbjörn at Djúpavík, Árneshreppur and Menningarráð Vestfjarða.

Rósa Sigrún Jónsdóttir