Sýningin “Undir áhrifum ” eftir Dýrfinnu Torfadóttar
Dýrfinna Torfadóttir heimsótti Djúpuvík og fleiri staði á Ströndum í fyrrasumar og heillaðdist af umhverfi og fegurð
svæðisins. Hún vann nokkar gripi og setti saman mzndverk sem verða til sýnis
Dýrfinna, gullsmiður starfrækir vinnustofu sína á safnasvæðinu að Görðum, í húsi
nefnt Fróðá. Þar vinnur hún að skartgripagerð, skúlptúrgerð og gerð lágmynda.
Dýrfinna Torfadóttir er fædd 1955 í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og bjó þar
eftir að námi lauk og þar til hún fluttist til Akraness haustið 2001.
| |
 |
|
 |
|
 |
|
 |
| (Smellið til að stækka myndina) |
Hún lærði fag sitt á Akureyri og í Valdres, Noregi og lauk meistaraprófi í gullsmíði árið 1983.
Hún opnaði vinnustofu og verslun sama ár á Ísafirði sem enn er starfrækt Þar er boðið upp á handunna
skartgripi og gjafavöru.
Dýrfinna hefur tekið þátt í fjölda sýninga, bæði einkasýninga og samsýninga
og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar. Meðal annars hlaut hún 1. verðlaun fyrir tískuskartgrip ársins árin
1997, 1998 og 1999. Hún er fyrrverandi formaður Félags íslenskra gullsmiða.
Dýrfinna hefur sem skartgripahönnuður skapað sér sérstakan og persónulegan stíl sem einkennist
af frumlegri og oft óhefðbundinni efnismerðferð og djarfri útfærslu. Með þessu hefur hún skipað sér í röð hinna
eftirtektaverðustu gullsmiða og skartgripahönnuða á Íslandi.
Skartgripir og önnur verk eftir Dýrfinnu eru til sölu í versluninni Módel á Akranesi, hjá Listhúsi Ófeigs í Reykjavík
og í versluninni Gullauga á Ísafirði.
Heimasíða Dýrfinnu Torfadóttur: www.diditorfa.com |