![]() |
||||||
![]() ![]() ![]() Hótel Djúpavík Fréttir 2008 - - Álfasteinn – sumarhús Lækjarkot Gestabók Gamla Síldarverksmiðjan Hvað hægt er að gera Verð Leiðin/landakort Myndir - - - - - - - - - - - Tenglar Hafið samband/ spurningar/ bókanir Um vefinn |
Djúpavíkurdagar 2007 - 17.–19. ágúst Föstudagur 17. ágúst Matseðill kvöldsins verður með hefðbundnum hætti.
Laugardagur 18. ágúst Kl. 14.00 Skoðunarferð um síldarverksmiðjuna, leiðsögumaður verðu Héðinn Birnir Ásbjörnsson. Kl. 14.30 Djúpvíkingurinn. Keppni barna í ýmsum þrautum og leikjum sem nú er haldin í fjórða sinn; umsjón hefur Kristjana María Ásbjörnsdóttir. Að lokinni keppni um Djúpvíkinginn verður bryddað upp á nýjung sem ákveðið hefur verið að reyna að koma í Heimsmetabók Guinnes á næsta ári. Þá eiga börn og fullorðnir að fara niður í fjöru og “fleyta kerlingar” í ca. 10 mín. Líta má á þetta fyrsta skipti sem aðalæfingu fyrir næsta ár.
Kl. 19.00–21.00 Sjávarréttahlaðborð. Hlaðborð Hótel Djúpavíkur hafa alltaf verið vinsæl í gegnum árin og nú er röðin komin að sjávarréttunum aftur. Verð kr. 3.000,– fyrir manninn. Lifandi tónlist verður á meðan á borðhaldi stendur.
Sunnudagur 19. ágúst: Kl.
14.00 Síðasta kaffihlaðborð sumarsins, gómsætt að venju. Kr. 1.200,– fyrir
manninnn.
[til baka] |
|||||