![]() |
||||||
![]() ![]() ![]() Hótel Djúpavík Fréttir 2008 - - Álfasteinn – sumarhús Lækjarkot Gestabók Gamla Síldarverksmiðjan Hvað hægt er að gera Verð Leiðin/landakort Myndir - - - - - - - - - - - Tenglar Hafið samband/ spurningar/ bókanir Um vefinn |
Hvað hægt er að gera Hér eru nokkur dæmi um það sem hægt er að gera meðan þú dvelur í Djúpavík:
Stutt gönguleið (u.þ.b. 5 km) sem hefst í Djúpavík. Gengið er eftir stikaðri leið upp á klettahjallann fyrir ofan þorpið, þar sem fossinn fellur fram af brúninni. Stórkostlegt útsýni yfir fjörðinn er ferðarinnar virði. Tekur u.þ.b. 3 klst. (eða lengur ef oft er stoppað).
Gömul gönguleið yfir Naustvíkurskörð frá Naustvík til Trékyllisvíkur. Þessi
leið var fyrrum notuð af heimafólki til að fara í kaupstað í Kúvikum. Leiðin er u.þ.b.
3,5 km og
Röltið um á milli litlu vinalegu húsanna þar sem áður var helsta hákarlaverstöð á landinu. Þar
er engin föst búseta lengur, en húsin eru notuð af fyrrum íbúum til sumardvalar. Á Gjögri er
flugvöllur sem flogið er á tvisvar í viku frá Reykjavík.
Þegar ekið er eftir veginum norður fyrir Norðurfjörð er komið að sundlauginni í landi Krossness. Sundlaug þessi er einstök, bæði hvað varðar heita vatnið sem kemur úr hverum ofan í hlíðinni og hvað varðar staðsetningu. Hún er staðsett niðri í fjöru og útsýnið getur verið stórkostlegt þegar sólin er að setjast um miðnættið og oft má sjá seli að leik rétt fyrir utan.
Við bæinn Árnes í Trékyllisvík er frábært lítið minja- og handverkshús. Þar eru til sýnis gamlir munir allt frá miðöldum til okkar tíma. Þar eru einnig til sýnis og sölu handverk og listmunir unnir af fólki úr héraðinu.
Á Norðurfirði er stunduð smábátaútgerð, þar er rekin ferðaþjónusta og þaðan eru reglubundnar bátsferðir á Hornstrandir. Þar er útibú Kaupfélags Strandamanna sem selur allar helstu matvörur og eldsneyti og á Norðurfirði er einnig útibú frá Sparisjóði Strandamanna.
Á Hornströndum eru langar strandlengjur sem orðið hafa æ vinsælli til gönguferða með hverju árinu. Þar er náttúran óspjölluð og engir bílar til að skemma fyrir. Þangað er aðeins hægt að komast gangandi eða með bát frá Norðurfirði yfir sumarmánuðina. Upplýsingar fást á vefnum: www.freydis.is |
|||||