Síldarævintýri
Um hundruðir ára hafði landbúnaður verið aðal atvinnuvegurinn í héraðinu, en saga Djúpavíkur
hefst árið 1917 þegar Elías Stefánsson setti þar á stofn síldarsöltunarstöð. Þetta
breytti lífi fólks, en síðan varð Elías gjaldþrota í kreppunni miklu árið 1919.
Árið 1934 var
hafist handa við byggingu síldarverksmiðju á Djúpavík
og aðeins rúmu ári síðar, eða 7. júlí 1935 var farið að framleiða bæði
síldarmjöl og lýsi. Veiðin var mjög góð og verksmiðjan malaði gull.
Þegar síldarverksmiðjan var fullbyggð var hún langstærsta steinsteypta bygging á Íslandi. Enn þann
dag í dag er hún gríðarstór, 90 metra löng á 3 hæðum.
Síldarverksmiðjan var útbúin öllum
fullkomnustu tækjum til síldarbræðslu og vinnslu á mjöli. Lýsið fór í gegnum 6
skilvindur sem skildu úr því vatn og föst efni og fór síðan í steinsteypta tanka fyrir utan
verksmiðjuna sem rúmuðu samtals 5,6 tonn. Slíkar skilvindur höfðu ekki verið notaðar áður
hér á landi.
En tímarnir breyttust. Aflinn náði hámarki á svæðinu sumarið 1944, en eftir það minnkaði
síldastofninn hratt. Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til nýrra notkunarmöguleika var síldarverksmiðjunni
endanlega lokað árið 1954.
Í dag er í vélasal
síldarverksmiðjunnar
Sögusýning Djúpavíkur sem segir frá tímum síldarævintýranna. Einnig er hægt
að fá leiðsögn í gegnum verksmiðjuna sjálfa.
Nóbelskáldið Halldór Laxness fjallar á spaugilegan hátt um síldarárin í bók
sinni Guðsgjafaþula.
Hér getur þú hlaðið niður Sögu Djúpavíkur (PDF, 20 blaðsíður, u.þ.b.
3,5 MB).
Í gegnum árin hafa ýmsir menningaratburðir átt sér stað í síldarverksmiðjunni.
Árið 1994 var “Lífið er lottery” eftir Jónas og Jón Múla Árnason sýnt, árið 1996
var flutt leikritið “Á sama bekk” eftir Sævar Sigurgeirsson og árið 1997 leikritið “Jóðlíf” eftir
Odd Björnsson. Nokkur böll voru haldin þar á árunum 1998-2002 og sumarið 2006 hélt hljómsveitin
Sigur Rós þar tónleika.
Heimsækið myndasafnið okkar hér.
|