![]() |
||||||
![]() ![]() ![]() Hótel Djúpavík Fréttir - - Álfasteinn – sumarhús Lækjarkot Gamla Síldarverksmiðjan Hvað hægt er að gera Verð Leiðin/landakort Myndir - - - - - - - - - - - Tenglar Hafið samband/ spurningar/ bókanir Um vefinn |
Hvernig þú kemst hingað Djúpavík er í botni Reykjarfjarðar á Ströndum, sem tilheyra norðvesturhluta Íslands. Það tekur á bilinu 4 til 5 tíma að keyra hingað frá bæði Reykjavík og Akureyri. Fylgið hringvegi 1 að Brú í Hrútafirði, þar er beygt inn á veg nr. 61. Ekið eftir honum u.þ.b. 100 km. til Hólmavíkur og áfram aðra 12 km, þar er beygt til hægri á veg nr. 643 í átt að Norðurfirði. Eftir aðra 60 km. muntu koma til Djúpavíkur. Þú getur ekki misst af okkur, við erum í fyrstu húsaþyrpingu sem þú sérð eftir klukkustundar akstur frá Hólmavík. Vinsamlegast athugið að engin bensínstöð er á milli Hólmavíkur og Norðurfjarðar. Takið því eldsneyti á Hólmavík. Einnig er hægt að taka flug frá Reykjavík á Gjögur. Flugfélagið Ernir flýgur tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum og við sækjum ykkur á flugvöllinn.
|
|||||